Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur

ný síða

12. febrúar 2007 klukkan 23:15

www.blog.central.i/small- passiði að bandstrikið séð fyrir aftan, virkrar ekki að klikka hér :/

stelpurnar

afmæli

12. febrúar 2007 klukkan 12:55
hú Ég á afmæli í dag
og er komin með bílprófið

 :)   :)  :)  :)   :)   :)



Nei ekki aveg en ég get ekki beðið eftir þessum degi!
Ég ætlaði bara að láta vita að ég er á l í f i  ! en gaman 

                               Hilsen Bára

hehe þetta er flott blogg ekki satt?
nei ég blogga seinna þegar ég hef e-h að segja
;;;;;DDDDDDD

stelpurnar

Hefur þú brennt pítu?

11. febrúar 2007 klukkan 14:25
Jæja, hvað segiði gott?
Ég er góð sko..
Sit hérna heima að reyna að koma mér í heimalærdómin, sem er reynar engan vegin að ganga..

Vitiði það, að ég er eitthvað svo tóm núna, mér finnst ég vera svo einmanna..
Þessi bær hérna er náttúrulega alveg að deyja út, eða það liggur við!
Reyndar kom Ólöf heim um helgina, það var nú alveg fínt að fá hana. Svo kemur hún aftur næstu helgi, og ég er búin að ákveða það að ég ætla ekki að rúnta. Ég og hún ætlum að taka okkur spólu og vera eitthvað saman! True Olla?

Ég fór að pæla í því áðan þegar ég var að fá mér pítu, að ég hef oft brennt brauðsneiðar, en ég hef aldrei á ævinni brennt pítubrauð!
hafið þið brennt pítubrauð? :P

Hérna ..
-ég er farin í nammibann eftir þessa helgi
-Bára og ég fengum okkur steyptar neglur um helgina = get ekki nagað :D
-Fer ekki fyrr á morgun inná ak. sem er ekkert nema snilld
-Þarf að fara að læra..

Bless

Una
stelpurnar

FAR

11. febrúar 2007 klukkan 11:31
vantar far suður i DAG!!!!


KV. Olla
stelpurnar

iðnfræði : 10 !

09. febrúar 2007 klukkan 21:26


jææja. núna er komin helgi, ég elska helgar... samt er ég að vinna. en so what?

Allavegana ætlaði ég ekkkert mikið að segja
nema bára dögg þórisdóttir, stefanía regína jakobsdóttir og ólöf sighvatsdóttir bítið í rassinn á ykkur og fariði að blogga. una sighvatsdóttir er nýbúin að blogga, samt máttu alveg fara að koma með annað.

ef þið ætlið að vera á síðu með mér, þá er bara eins gott að þið passið ykkur og standið ykkur í stykkinu, þið vitið ekki hvað bíður ykkar!!

ykkkar heittelskaða

álfhildur haraldsdóttir
stelpurnar

Afmæææælli ;)

07. febrúar 2007 klukkan 23:23

Við hérna í 5223 eigum afmæli í dag ;)
Fyrir akkurat 5 mánuðum, varð Lilja alveg edrú og ég fór í hnéaðgerðina!
Alveg hreint magnaður dagur ;P

Í gærkvöldi kom ég með þetta blogg hérna, svo í dag var það bara horfið.. Þannig að kella ákvað að koma bara með nýtt í staðin.

Þessa vikuna hefur chillið verið tekið á þetta, og slappað af á kvöldin, þar sem að ég kemst ekki í ræktina vegna hnéverkjar og leti. Held að næsta vika verði tekin í að vera sem minnst í tölvunni, læra og fara í ræktina.. Er það málið? ;)
Veit samt að það á aldrei eftir að verða þannig

En annars fórum ég, Hafey og Bára að sækja um vinnu í dag. Við fórum í norðlenska, og fylltum út umsóknir.. Svo er bara að bíða í von um að allt gerist og við fáum vinnu. Ég veit ekki alveg um hvað norðlenska snýst, en það er eitthvað að pakka einhverjum vörum og láta merkimiða á pylsupakka eða eitthvað álíka..
Veskið hjá kellu er nefninlega heldur betur farið að léttast..

Vistin.. ég elska hana útaf lífinu. Ég elska hvað það eru skemmtilegir gaurar hérna sem eru svo fyndnir að taka rafmagnið af nokkrum herbergjunum hérna, banka á hurðir og að liggur við öll samtöl heyrast á milli veggja..
Heeell no..ef þið vitið um e-a íbúð á ak. sem er verið að leigja (LEIGA eins og Bára myndi kannski orða þetta ;P ) þá megiði endilega láta mig eða gittu vita ;)

Heyriði.. Annað í fréttum.. Ég er komin með myspace. www.myspace.com/unasighvats er slóðin á það ;) Ég reyndar kann ekki shitt á þetta, en það reddast :)

Jæja, ég ætla að fara að enda þetta þannig að ég geti farið að sofa..
Kominn tími á það að fara einu sinni snemma að sofa, þannig að maður haldi sér nú vakandi allan skóladaginn á morgun.

Ég verð bara að monta mig á einu enn. Ég fór í rekstrarhagfræði í morgun, og við áttum að vera búin að gera eitt verkefni. Það vildi svo skemmtilega til að nördið hún Una var sú eina sem var búin með þetta verkefni. Kennarinn varð snælduvitlaus og labbaði út úr tíma, og áttu allir að klára verkefnið í fyrri tímanum. Þá sat ég bara og var að sms-ast og leika mér í ipodinum mínum á meðan allir aðrir unnu hörðum höndum við að klára verkefnið.. Það sem ég er að segja er, að maður á að vera duglegur að læra heima.. Eins og ég ;) múhahaha


..Afmælisstelpurnar

Una

stelpurnar

07. febrúar 2007 klukkan 12:49




rosalega er maður klár ;) 

nennti ekki að snúa þeim við... alveg nóg og gott fyrir ykkur :)

Álfhildur hárgreiðlsukona!
stelpurnar

þú ert ??

05. febrúar 2007 klukkan 21:01

já ég ákvað að taka mér pásu, persónuleg ástæða. en ég nenni ekki að hugsa um það lengur, fólk sem veit að það hefur komið fram við mann eins og það á ekki að gera .. sumir taka samt ekki eftir því hvað þeir eru vitlausir. æji mér er alveg sama.

ég þurfti að breyta útlitinu útaf því að þetta var ekki að gera sig, alltaf þegar ég fór á síðuna gat ég ekki séð bloggið, eins og við værum aldrei búin að blogga á því. þetta er allt í lagi, er það ekki stelpur? 

í dag eins og alla mánudaga hef ég lítið sem annað en ekkert að gera. frekar leiðinlegt.. er bara í einum tíma á mánudegi.. svo er salli palli alltaf að vinna.

já ég ætlaði að koma til sigló um helgina, en komst ekki því ég fann ekkert far þannig ég fór bara að vinna í staðin. fer líka að vinna næstu helgi, og það er búið að bjóða mér og salla út að borða. 
svo helgina eftir það er staffadjamm, er búin að skrá mig og salla. 
og helgina eftir það svo er ég að fara að vinna... og svo helgina eftir það er ég loksins orðin frí og ætla ég heldur betur að drulla mér á siglufjörð!!! það er alveg komin tími á það. semsagt í MARS.

helst vil ég fá heimsókn til rvk, vinkonur og fjölskylduna!!  

já eins og  alltaf er bara eitthvað lítið að frétta af mér, fór á fótboltaæfingu á laugardaginn kl 9 um morgunin!! stollt hérna í gangi :)

þurfum að fara að gera eitthvað á síðuna, láta myndir og kannski slúður og eitthvað flipp ? okei
já en þetta verður ekkert lengra.. 

Álfhildur
 
stelpurnar

tími á blogg?

02. febrúar 2007 klukkan 20:11
Jæja, orðið frekar langt síðan ég hef bloggað hérna þannig að núna kemur eitt blogg frá mér .
 

já núna síðustu 2 daga hef ég bara verið veik :/
frekar skítt með hita, beinverki , hausverk og bara já ógeðslegt þannig að það er nú ekki mikið nýtt búið að ské hjá mér núna síðustu daga.
En á miðvikudaginn þá fór ég að ná í stundatöfluna mína sem er bara alveg ágæt skal ég segja ykkur :)
finnst nú samt föstudagarnir langtum bestir þar sem ég fer í skólann kl 8 og er búin 20 min i 11 ..
frekar næs það Svalur


En já um daginn þá kíkti ég með Báru niðrí bak og heylsu held ég að það heiti og eftir það þá kom hafey og við skruppum í glerártorgið ..
Bára og Hafey fóru að leita sér að einhverri vinnu en það er greinilega ekki mikið um vinnu handa fólki á okkar aldri núna að hafa :/ en þetta var nú samt
baara skemmtiferð þrátt fyrir það. Fengum eitt hláturskast held ég í rúmfatalagernum haha áður en við fórum inná skrifstofuna.



Svo núna á þriðjudaginn þá hittumst við stelpurnar hjá unu .ég , bára, birgitta, hafey, evaog svo náttlega una til að horfa á  Danmörk- Ísland í handbolta og vá skal ég segja ykkur..
við vorum gjörsamlega að missa okkur ! sumir aðeins meira en aðrirUllandi


en ég ætla að láta 2 myndir fylgja með þessu bloggi..
ætlaði að gera það fyrir löngu en gat það ekki þá en þetta er mynd sem sýnir snilligáfur Báru Daggar í photoshop ;)

 

svona fékk bára myndina og gerði hana af þessu


 
hehe klár eða hvað?  Glottandi

~steffý~
stelpurnar

myndir

02. febrúar 2007 klukkan 04:48
ég vildi bara láta ykkur vita en ég get ekki séð myndirnar sem eiga að vera hérna.
getið þið það?

kv. olla
stelpurnar

passsaðu þig ! :)

afmæli tvíbbana!

Jeijj :)

Keyra? neiii ?

Könnun

er subway GOTT ??